22mars

BLOGG:D

Vei ég er að blogga :) hvað kemur til ? :D

ég er sem sagt búin að eiga afmæli :) orðin 20 :P Gunni varð mjög ánægður þar sem hann ætlar að nota tollinn minn á áfengi á leiðinni heim frá Rhodos, ég er nú ekkert búin að samþykkja það ;)

en já ég er sem sagt að fara á akureyri 30 mars, STELPUFERÐ :) Fer með Ingu í bíl, á bílnum hennar mömmu hennar
ar og Sibba og Baddý fara á Sibbu bíl... Verður vonandi geggt gaman, veit samt alveg að ég a eftir að sakna gunna en ætla ekki að hugsa mikið um það :) 

Svo helgina eftir ætla ég að vinna, helgina eftir það fer ég í Sumarbústað :) þá fær Gunni að koma með og við förum með Sibbu, Hrannari, Ingu og Atla ÞAÐ VERÐUR GEGGJAÐ :)

ohh ég get ekki beðið samt eftir því að fá TVÖ frændsystkini, hlakka voða mikið til að hitta þau... ég held samt að þetta verði 2 strákar, allir halda að þetta verði sitthvort kynið en ég ætla samt ekki að lofa því :)








en allavega hef eg ekkert meira að segja en þúst blogg er blogg en hey ALLIR AÐMÆTA I SM'ARALIND UM HELGINA, FRA 3 A FÖSTUDAG TIL 6 A LAUGARDAG :) að skoða hjá okkur bakkana og kaupa þannig og fá smakk :)

sjáumst þar
22. mars 2007 klukkan 11:09
Eyrún
4 athugasemdir
01febrúar

Jæja

jæja jamm, Gunni átti sem sagt afmæli í gær og ég ætla aðeins að skrifa smá um okkur ;)


Kynntumst í bónus í apríl eða eitthvað þannig, en byrjuðum saman í byrjun Júlí ;)
ég fór með UNNI ÆÐIBITA til Portúgals seinnipart Júlí og kom Gunni til mín þanngað með millilandaflugi og alles ;)
komum heim og unnum bæði í bónus til áramóta og þá fór hann í bílamálunarframhald í Borgó og elti ég hann þanngað og VÁ hvað þetta er æðislegur skóli...
kláruðum þá önn mis vel en náðum öllu og fórum að vinna á fullu til að geta átt fyrir ferðinni okkar sem við fórum um sumarið til Costa Del Sol í 3 vikur með hans fjölskyldu, það var mergjað stuð :D
þegar við komum heim frá costa del sol fór ég í skólann en hann að vinna, í nóvember skelltum við okkur til Danmerkur með fólki og sú ferð var svona ágæt, ekkert spes en þúst ágæt.... svo komu jólin og áramótin númer 2 sem við vorum saman, eftir þau þá byrjaði skólinn aftur og þá var gunni einnig í skólanum, um páskana fórum við til Danmerkur með Guðna, Hildi, Marra og Tinnu og sú ferð var mun skemmtilegri heldur en þessi fyrri!!!
þegar við komum heim kláruðum við skólann og Gunni útskrifaðist af Bílamálunarbraut ;) og svo í byrjun sumars kom sveinsprófið ;) duglegur kallinn Koss
og það sumar sem sagt sumarið 2006 fórum við á bíladaga og þeir voru nú ágætir en enduðu illa þar sem imprezan skemmdist á leiðinni heim, en því að ég á svo duglegan kærasta þá lagaði hann það sjálfur með aðstoð Sigurjóns ;)
um verslunarmannahelgina ákváðum við að fara til eyja, fórum þanngað og það var ágætt, svolítið mikið drama en það var ekki hjá okkur þannig að við skemmtum okkur mjög vel saman.... ;) svo fór ég í skólann og hann var að vinna hjá ALP í kóparvogi og er þar enn, um jólin fórum við til kanarí með minni fjölskyldu og skemmtum okkur þar ágætlega, það var svolítið mikið meira slappað af en annað en það var auðvita mjög gott og gaman að prufa að fara með fjölskyldunni sinni til útlanda, nenni ekki að segja alla ferðasöguna hér en hún var mjög skemmtileg sú ferð :D núnar er kominn Febrúar og átti Gunni afmæli í gær og varð hann 22, TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ÁSTIN Mín hehe ekki eins og hann sjái þetta en þúst kraftaverk geta gerst :P

en svo í lokin þá koma bílategundirnar sem hann hefur átt síðan við byrjuðum saman!!! : Corollu, Hondu, Avensis,Mustang, Imprezu, Nissan og Avensis


en annars er allt gott að frétta og við hlökkum bara til að fara til RHODOS eftir 170 daga

01. febrúar 2007 klukkan 15:14
Eyrún
7 athugasemdir
29janúar

Góðan Dag góðan dag glens og grín það er mitt FAAAAAAG

Jæja góðan daginn og gleðilegt nytt ar Brosandi
núna er ég í töf203 sem er sem sagt tölvu tími og shit mér leiðist hérna!!!!

um helgina var ég að vinna í bónus, ég og Elva Eik byrjuðum á föstudaginn kl 11, unnum sem sagt til lokunar, vöknuðum snemma a lau og unnum til lokunar og a sunnudag var þetta eins 11 til lokunar. maður er nú svolítið þreyttur hérna í tíma en það verður að hafa það því að ég er að fara að vinna í dag líka og get ekki farið heim og lagt mig til að hætta að vera þreytt haha Brosandi 
en ég verð auðvita að vinna þvi að eg er að fara til RHODOS á GRIKKLANDI í 3 VIKUR i sumar ;)
fer með Gunna og hans æðislegu fjölskyldu og frændfólkinu hans sem er líka ógeðislega skemmtilegt Glottandi

En já á ég að segja eitthvað fleira hey já ég er búin að kaupa mér nýjan bíl Koss Hondu Civic 98 árg, grænan með topplúgu og alles Glottandi

úff núna styttist í það að ég eignist TVÖ lítil frændsystkini, enginn veit hvaða kyn það verða en ALLIR vita að þau verða ÆÐISLEG!!!

svo er bara spurning hvað eða hvort maður geri eitthvað á afmælinu sínu, verð audda 20 ára en þúst er það ekki bara eins og hvert annað afmæli?


svo má ég ekki gleyma að Gunni á afmæli á miðvikudaginn Glottandi 
kem KANNSKi með blogg um það þá lofa enguSaklaus

Þanngað til næst ;)
Eyrúnska

29. janúar 2007 klukkan 14:39
Eyrún
3 athugasemdir
20desember

Síðasti dagurinn minn á Íslandi á árinu 2006

Jæja núna er komið að því sem ég hef beðið eftir MJÖG lengi Glottandi er að fara til kanarí á morgunn eða bara í nótt leggjum við í hann uppá flugvöll Brosandi en ég ætla að gera svona smá færslu um liðið ár:
Byrjum á því að ég var auðvita í borgó
Gunni minn útskrifaðist af bílasprautunarbraut í borgó
Gunni fékk sveinspróf að lokum útskriftar og byrjaði að vinna á mjög fínum stað ALP/GAP í kópavogi
En yfir í mig, ég fór til DK í endan Mars byrjun Apríl komum við heim, á sama tíma var Tanni BESTASTI vinur í heimi á kanarí og datt niður af svölunum og lést af völdum þess 1. maí 2006 og vá hvað ég sakna hans GEGGJAÐ mikið, maður finnur alltaf meira og meira fyrir því hvað maður saknar hans, en hann er með mér í mínu hjarta hvern einasta dag og það er mjög gott að vita af honum þar og rifja upp gamla tíma Glottandi
en með söknuði kláraði ég vorönn í skólanum
vann í bónus um sumarið og fór til eyja um verslunarmannahelgina
byrjaði á haustönn í borgó aftur og keyri alltaf frá álftanesi
kynntist Ingu ÆÐIBITA í skólanum ásamt írisi og sunnu
byrjaði svo fljótlega að vinna hjá póstinum sem er mjög fínt en svolítið einmannalegt þvi að maður er bara einn að keyra hehe en það kynntist ég Tinnu BEIP og hún er alger æðibiti líka
náði að velta bílnum mínum
rústaði þessari önn með flottum einkunnum
og er bara að fara að pakka niður og fara til Kanarí á morgunn




GLEÐILEG JÓL OG GLEÐILEGT NÝTT ÁR
HAFIÐ ÞAÐ GOTT YFIR HÁTíÐINA
SJÁUMST SVO HRESS Á NÝJU OG BETRA ÁRI Koss

JÓLAKVEÐJUR
EYRÚN Koss

20. desember 2006 klukkan 21:20
Eyrún
9 athugasemdir
10desember

Jæja :/

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1240513

jamm ég er víst talin vera KONA og hvað þá Elva Eik sem er 14 ára KONA haha
mest fyndið en samt er eg að drepast í bakinu en það lagast vonandi, er amk ekki brotin, er tognuð og Elva er tognuð á bakinu og hálsinum...
vonandi er þetta engir varanlegir verkir hjá okkur Óákveðinn

eg veit ekki hvað ég á að segja meira
en amk smá fréttir núna
kv Eyrún sem verður ljóshærð á mánudag eða þriðjudag Glottandi

10. desember 2006 klukkan 04:56
Eyrún
6 athugasemdir
27nóvember

DO THIS!!!!!!!!!!!!

1. Nafn þitt?
2. Hvar kynntumst við?
3. Hvað er miðnafnið mitt? 
4. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
5. Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
6. Hversu vel þekkiru mig? 
7. Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
8. Hvað er ég gömul?
9. Afmælisdagur minn er?
10. Háralitur?
11. Augnlitur?
12. Á ég systkini?
13. Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
14. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
15. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig ?
16. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
17. Hver er minn besti eiginleiki?
18. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
19. Er ég nokkuð fyndin?
20. Er ég svarti sauðurinn eða fylgi ég öllum reglum?
21. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
22. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera?
23. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni?
24. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
25. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 26. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
27. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
28. Hvaða vin held ég mest uppá?
29. Hef ég hjálpað þér?
30. Þykir þér vænt um mig?
31. Er ég sannur vinur?
32. Elskarðu mig?
33. Langar þig að faðma mig?


einnig ætla ég að minna á það að við Gunni erum að fara ásamt minni yndislegu fjölskyldu til Kanarí eftir 24 daga Glottandi það þýðir að það séu ekki nema 27 dagar í jólin Brosandi
27. nóvember 2006 klukkan 18:34
Eyrún
8 athugasemdir
23nóvember

Ömurlegt að blogga

jæja núna er ömurlegt að blogga... kommenta fáir og þá eru eflaust bara tveir sem skoða þetta en well eg ætla að blogga samt... ég er bara heima núna, engin vinna i dag... skrítið þar sem ég hef verið að vinna siðustu marga daga, veit ekki einu sinni hvenær eg var síðast í fríi, alltaf annað hvort bónus eða pósturinn til að fá peninga til að kaupa eitthvað á Kanarí...
ohh ég sakna Tanna alltaf meira og meira, ekkert lagast eins og allir segja... bara meira sárt þegar maður finnur fyrir því að hann sé alveg farinn Gráta hann var náttúrulega mesta yndi sem til var og enginn á eftir að toppa það, núna á fm er alltaf verið að spila eitt gott lag, það heitir Hurt og er með Kristínu Agulera, shit hvað það er gott, minnir mig mest á Tanna reyndar en það er samt gott... hann mun nefnilega alltaf eiga sinn stað hjá mér Koss 
í dag fór ég í plokkun og litun, það gerði heví mun en samt kannski of mikinn en bíttar engu...
á föstudag erum við að fara á jólahlaðborð á hótel sögu með ALP, vinnunni hans Gunna... það verður eflaust stuð, á laugardaginn ætlum við að bruna í bústað til mömmu og systra minna ásamt fylgihlutum hehe í borgarfirði og um kvöld eru þau að fara á jólahlaðborð en við ætlum kannski á ballið, fer eftir stemmaranum hjá okkur... kannski er ég að fara að fá nýjan bíl á laugardaginn, fer eftir því hvort gæinn ætlar að hafa þetta eins og það var eða hvort hann sé bara idiot og ætli að taka græjurnar úr og eitthvað bull, ég leyfi Gunna að sjá alfarið um þetta Skömmustulegur eg kann þetta ekkki hehe
núna ætla ég að fara að horfa á TV og vona að Gunni fari kannski að koma heim úr vinnunni, alltaf vinnandi...
ein spurning svona í endan... hvort á ég að vera ljóshærð eða dökkhærð? mjög erfitt val!!!
endilega kommentið
kv Eyrún
P.S. Kanarí eftir 29 Daga Hlæjandi
23. nóvember 2006 klukkan 02:18
Eyrún
4 athugasemdir
09nóvember

ég er á lífi

jæja margir eru búnir að gera þetta en ég ákvað að prufa. endilega skrifiði í komment ykkar nöfnBrosandi

E- you have a nice ass
Y-One of the hardest gangsters alive
R- you are one of the best in bed.
U-You are really chill.
N- you are the sexiest motherfucker out there

A- Pretty damn good kisser.
B-You are always fun when it comes to meeting new people.
C- you\'re wild and crazy
D-You have trouble trusting people.
E- you have a nice ass
F-People totally adore you
G-You never let people tell you what to do.
H-You have very good personality and looks.
I-Love is something you deeply believe in.
J-Everyone loves you.
V-You are not judgemental.
K- You like to try new things
L- you are too gangster.
M-success comes easily to you.
N- you are the sexiest motherfucker out there
O-You love foulplay.
P-You are popular with all types of people.
Q-You are a hypocrite.
R- you are one of the best in bed.
S- You are an excellent friend.
T-You\'re loyal to those you love.
U-You are really chill.
V-You are not judgemental.
W-You are very broad minded.
X- You never let ppl tell u wat to do
Y-One of the hardest gangsters alive

09. nóvember 2006 klukkan 21:34
Eyrún
3 athugasemdir
30október

Eiginlega ekkert að frétta :/

en ég skrifa samt

Hæhæ
um helgina var margt um að vera, eða eiginlega ekki eins og oft en á föstudaginn bakaði ég pizzu hérna heima eða ég bakaði hana ekki, ég gerði allt nema deigið, fengum það tilbúið úti í bakaríi... það var mjög gott og gaman að gera kvöldmat handa fjölskyldunni. á Laugardaginn vaknaði Gunni á undan mér og viti menn ég fékk að sofa Glottandi kemur ekki oft fyrir en það gerist hehe... Gunni fór að vinna og vann eitthvað til svona 3 og þá kom hann heim og fór í tölvuna, það er bara rútínan hans hehe koma heim og fara í tölvuna... eins gott að hann veit ekki að ég er með bloggsíðu haha Saklaus en um kvöldið á laugardeginum þá fórum við á árshátíð hjá  það var mjög fínt, vestið mitt loðna, þetta svarta vakti mikla athygli hjá Atla hennar Ingu Glottandi hehe, hún er stelpa sem ég er með í skólanum og er líka að vinna hjá póstinum er ÆÐI... það var happdrætti og Díana (var með mér í borgó á síðustu önn, er auðvita líka geggjað mikið ÆÐI!!!) og Ásgeir unnu ferð innan lands fram og til baka með flugi og gistingu í eina nótt á Fosshóteli... ég öfunda þau geggjað, örugglega geggjað gaman að fara í rómantíska ferð svona tvö eitthvað út á land Glottandi
en svo kom að aðalvinningnum, utanlandsferð fyrir tvo með icelandair á einhvern stað þeirra í evrópu og viti menn, Tinna beib sem ég er að vinna með vann það, shit hvað ég öfundaði þær stelpurnar fyrir þetta og það munaði svo litlu að ég væri að ná í miða á sama tíma og Tinna, fór aðeins á undan henni en stóð og beið á meðan hún fékk sinn Óákveðinn minn var númer 10 Gráta ég fékk engan vinning ekki einu sinni konfektmola!!!
við Gunni stoppuðum stutt á Árshátíðinni og fórum bara heim í háttinn... Vöknuðum við símann hans Gunna kl hálf 10 á sunnudegi en þá var hann með lykla sem einn gaurinn í vinnunni hjá honum þurfti að nota, ég fór aftur að sofa og hann fór heim til sín og kom síðan til mín um 3 leitið og þá var ég bara að lesa á fullu í enskri bók sem heitir Killing Mr. Griffin. ég las og las og svo kom Gunni: hey ég ætla að bjóða þér í bíó... ohh hann er svo elskulegur stundum Koss en við kíktum á
það var mjög góð mynd, fannst svo skrítið að vera í bíó og meðalaldurinn var svona 40 ára hehe Brosandi gerist sjaldan að ég sjái svona mikið af eldra fólki í bíó....
um kvöldið las ég svo meira því að við fórum bara í bío kl 17.40, ég kláraði að lesa þessar 100 blaðsíður á ensku sem ég átti eftir og svo í morgunn kom ég í skólann og hef aldrei orðið jafn svekkt, kennarinn sem kennir mér ensku var veikur... ég fór bara í fyrsta tímann minn og sat þegar ég átti að vera í ensku í sófa á annarri hæð og haha það var einhver gaur að teikna mynd af mer, hann var alltaf að horfa geggjað á mig og eitthvað og ég gerði samt ekkert í því, gaman að vera teikni hæf hehe núna er ég bara heima að koma mér í það að lesa á eftir að lesa svona 300 og eitthvað blaðsíður fyrir 10 nóvember sem er í næstu viku Gráta en næstu helgi á ég eftir að vera ALEIN Gráta hehe eða Gunni er að fara til Manchester á fótbolta leik, shit hvað ég öfunda hann en auðvita hef ég séð leiki, tilvalið að hann prufi hehe
en í dag eru ekki nema 52 dagar í KANARÍ!!!!! vei og þá eru ekki nema 55 dagar í Jólin eða Aðfangadag Brosandi
en búin að blogga nóg í bili Hehe sjáum hvað margir lesa þetta allt haha nobody i guess
En
bæbæ
Eyrúnska
30. október 2006 klukkan 20:44
Eyrún
Engin athugasemd
23október

Vinir


Vinur er sá sem.....

Tekur þér einsog þú ert
Trúir á þig
Hringir í þig bara til þess að segja "hæ"
Gefst ekki upp á þér
Fyrirgefur þér mistök þín
Hjálpar þér
Býður þér stuðning
Minnir þig á það góða í fari þínu
Dæmir þig aldrei
Skilur þig ALLTAF
Segir þér sannleikann þegar þú þarft að heyra hann
Þykir vænt um ÞIG en ekki útlitið þitt
Gengur við hliðina á þér
Tekur utan um þig þegar þig vantar stuðning
Hlustar á þig þegar þú þarft að létta á hjarta þínu
Er til staðar fyrir þig
Kemur þér til að hlægja
Huggar þig þegar þér líður illa
Myndi ganga yfir Everest ef þú þyrftir á honum að halda hinumegin

Vinur er sá sem þú getur ekki verið án




23. október 2006 klukkan 23:34
Eyrún
4 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Daddara

Rhodos á Grikklandi

Leikur dagsins

Leit

Innskráningar kubbur